blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

8.24.2004

Loksins varð af því!

Mig er búið að langa að fara í allt sumar og loks varð af því! Ég fór á kayak í gær í Hvalfirði :) Þetta er bara mesta snilld sem ég hef upplifað lengi. Sjórinn var svo spegil sléttur og þögnin næstum of mikil. Þetta er ekki eins auðvelt og ég hélt en ég hélt mér þurri en viðurkenni að hjartað hamaðist svoldið. Litla dýrið fékk næstum tár í augun og vildi snúa strax við en eftir smá sanfæringu varð hún róleg og naut þess líka :) Hún var svo sannfærð um að við myndum velta eins og á kanúanum um daginn!! hehe.. En þar sem hún var eitthvað skeptisk á þetta fórum við ekki langt. En það kveiknaði baktería hjá mér.. mér fannst þetta æði!!!!!! Ég er viss um að ef ég fer með hana aftur þá á hún eftir að fíla sig betur! En hér verður ekki aftur snúið að minni hálfu, eg VERÐ að fara aftur! :)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home